Frétt
Græna ljósið frumsýnir Funny Games
Hinn gríðarlega virti leikstjóri Michael Haneke (Cache), sem nú síðast í maí vann Gullpálmann í Cannes fyrir nýjustu mynd sýna, The White Ribbon, stúderar hér ofbeldi, nánar tiltekið kvikmyndaofbeldi og óendanlegan blóðþorsta nútíma áhorfenda.
Ljóst er að þessi kvikmynd er ekki fyrir alla, hún er stranglega bönnuð innan 18 ára og viðkvæmir eru varaðir við henni. Hér er skipulega og kerfisbundið farið gegn öllum hefðum Hollywood nú til dags varðandi ofbeldi og þeir sem eru að leita að svölum ljótum köllum, yfirnáttúrulegum hetjum og hamingjusömum endalokum ættu að velja sér eitthvað annað til að glápa á!
"Napur og forkunnar yfirveguð úttekt á kvikmyndaofbeldi. Funny Games refsar áhorfendum fyrir sinn óendanlega þlóðþorsta með því að gefa þeim allar þær ógeðslegustu misþyrmingar og limlestingar sem þeir geta mögulega óskað sér. Ansi sniðugur hrekkur hjá Haneke."
- Scott Tobias, The Onion
Í aðalhlutverkum eru Naomi Watts, Tim Roth og Michael Pitt og má með sanni segja að Watts sýni stórleik í eftirminnilegu og mjög krefjandi hlutverki. Græna ljósið gaf út Cache (Hidden) eftir Haneke fyrir 3 árum og gekk hún mjög vel.
Áhugaverðir tenglar
IMDB
Myndin á vefsíðu Græna ljóssins
Trailerinn á YouTube
Sjónvarpsauglýsing Græna ljóssins á YouTube
Myndin á Facebook síðu Græna ljóssins
Kaupa miða á Miði.is