Frétt

Frétt

Ný plata með Alexander Rybak og fleira

 

 

Alexander Rybak – Fairytales

Norski hvítrússinn Alexander Rybak sigraði Eurovisionkeppnina og endir hér frá sér plötuna Fairytales.  Lagið Fairytale, sigurlag Eurovision er orðið mest spilaða lag landins og er að sjálfsögðu á plötunni.   Verdens Gang, stærsta dagblað Noregs, hefur birt gagnrýni um plötuna og gefur henni hvorki meira né minna en sex af sex mögulegum. Önnur blöð taka í svipaðan streng og platan fær almennt góða dóma.

   

Method Man / Redman - Blackout 2

Rappararnir Method Man og Redman sendu frá sér plötuna Blackout fyrir 10 árum.  Nú koma þeir saman aftur og senda hér frá sé aðra plötu af svipuðum toga.

 

Busta Rhymes - Back To My B.S.

Áttunda hljóðversplata New York rapparans Busta Rhymes.

 

Simple Minds - Graffiti Soul

Skoska rokksveitin góðkunna var stofnuð árið 1977 og átti blómaskeið sitt á nýjunda áratugnum.   Sveitin er enn að og hér er nýjasta platan frá þeim, sem er að fá fína dóma.

Platan er fáanleg í tveimur útgáfum.

 

Marilyn Manson - The High End Of Low

Marilyn Manson með hljóðversplötu númer 7, en sú síðasta var Eat Me, Drink Me og kom út fyrir tveimur árum. 

Platan er fáanleg í tveimur útgáfum.

 

Neil Young - Archive Vol.1 1963-1972

Sett sem margir Neil Young aðdáendur eru búnir að bíða lengi eftir.   Settið kemur út í þremur útgáfum, 10 diska DVD boxi, 10 diska BluRay boxi og 8 geisladiska boxi.

                     

Jewel – Perfectly Clear

Söngkonan Jewel með nýja plötu.  Hún hefur verið órög við að gera eitthvað nýtt og í þetta skiptið er platan mjög kántrískotin.

 

Keyshia Cole - A Different Me

Þriðja plata amersísku R&B söngkonunnar.  Gestir telja stórstjörnur eins og Kanye West, Nas og fleiri.

 

Khaled – Liberté

Alsírski tónlistarmaðurinn Khaled er hér með glænýja plötu, en Khaled er eitt þekktasta nafn Rai tónlistarinnar.

 

Maria Joao & Mario Laginha – Chocolate

Portúgalska söngkonan Maria Joao og píanóleikarinn Mario Laginha hafa unnið saman í yfir 25 ár.   Hér er nýjasta platan frá þeim.

  

Nils-Petter Molvær – Hamada

Norski djassarinn með nýja plötu.

 

Noisettes - Wild Young Hearts

Noisettes er tríó sem kemur frá London og er að vekja mikla athygli með þessari plötu.  Sveitin er leidd áfram af söngkonunni Shingai Shoniwa og flytur samsuðu af blúsi, djassi, soul og diskói.

 

Endurútgefnar

Cat Stevens - The Teaser+The Firecat 2CD Deluxe

 

Vínill

Mastodon - Crack The Skye LP

Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli