Frétt
Futurama: Into The Wild Green Yonder - DVD
Myrk öfl, eldri en tíminn sjálfur, gera árás í þeim tilgangi að koma í veg fyrir að nýtt (og grænt) tímabil hefjist í sögunni. Vitið þið nokkuð andstyggilegra? Og það sem verra er, Bender er ástfanginn af giftri vélþokkadís og Leela á flótta undan lögreglunni. Fry, síðasta von alheimsins, er sendur í leynilegan björgunarleiðangur. Eru þetta endalokin? Nei, það getur ekki verið.
Leyfð fyrir alla aldurshópa
Íslenskur texti