Frétt
GUITAR HERO® METALLICA® KEMUR Á FÖSTUDAGINN
Guitar Hero® Metallica® , nýjasti leikurinn í Guitar Hero® seríunni, verður klár í verslunum frá og með föstudeginum 29.maí.
Hér fá leikmenn tækifæri á að skella sér inní heim Metallica þar sem Lars Ulrich, James Hetfield, Kirk Hammett og Robert Trujillo fara hamförum í sínum heitustu lögum, hvort heldur það sé á gítar, með söng, bassa eða dúndrandi trommuslætti. Leikurinn inniheldur meira en 45 gargandi rokklög sem eru annarsvegar flutt af Metallica og hinsvegar flutt af meira en 20 hljómsveitum sem hafa haft áhrif á Metallica bandið í gegnum tíðina, en þar á meðal eru hljómsveitir á borð við Alice In Chains, Bob Seger & The Silver Bullet Band, Foo Fighters, Lynyrd Skynyrd og Queen. Í leiknum spila leikmenn á tónleikastöðum sem sækja innblástur sinn í tónlist Metallica, plötualbúm þeirra og staði þar sem Metallica hefur spilað á ferli sínum.
Í leiknum er nýtt erfiðleikastig þar sem leikmenn nota tvo bassapedala við trommusettið til að tryggja hina einu sönnu Metallica tilfinningu, auk þess eru öll lög leiksins upprunalegar upptökur, en auk þess er leikurinn fullur af fróðleik um Metallica fyrir hörðustu aðdáendur.