Frétt

Frétt

Sena HEIMSfrumsýnir Night at the Museum 2

Sena HEIMSfrumsýnir Night at the Museum: Battle of the Smithsonian á morgun miðvikudag 20. maí í Smárabíói, Regnboganum, Háskólabíó, Laugarásbíói, Borgarbíói Akureyri og Keflavík. Ben Stiller leikur öryggisvörðinn Larry Daley sem laumar sér inn í stærsta safn í heimi, Smithsonian safnið í Washington í þeim tilgangi að bjarga nokkrum heimsfrægum karakterum sem hafa verið fluttir í safnið fyrir mistök. Upphefst nú mikið stríð í safninu þegar forfrægar sögulegar verur vakna til lífsins og taka þátt í stríðinu! Frábær ævintýra gamanmynd í anda fyrri myndar með Ben Stiller, Owen Wilson og Robin Williams ásamt fullt af flottum aukaleikurum í fanta formi.

Sjá trailer (stiklu úr myndinni):

http://www.apple.com/trailers/fox/nightatthemuseumbattleofthesmithsonian/

Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli