Frétt
Lhasa de Sela með nýja plötu
LHASA DE SELA “LHASA” Þriðja plata Mexíkósk/bandarísku tónlistarkonunnar Lhasa de Sela kemur út hér á landi mánudaginn 18 maí, en platan heitir einfaldlega ”Lhasa”. Lhasa er ættuð frá Mexíkó, fæddist í New York árið 1972 og býr núna bæði í Kanada og Frakklandi. Hún syngur á ensku, frönsku og spænsku, en nýja platan hennar er öll samin á ensku. Tónlist hennar er einstök þar hún blandar saman hinum ýmsu tónlistarstefnum sem hún hefur alist upp með .. kántrí, gospel, blús, rokk og þjóðlagatónlist frá ólíkum heimshornum eins og Mexíkó og austur Evrópu. Áður hefur hún gefið út plöturnar ”La Llorona” árið 1998 og ”Living Road” árið 2004. Eins og margir vita, þá er Lhasa de Sela gestur Listahátíðar þetta árið og heldur tónleika á Nasa laugadaginn 23 maí og sunnudaginn 24 maí.