Frétt
Thief 4
Eidos-Montréal sviptir hulunni af nýjasta kaflanum í Thief seríunni eða Thief™ 4.
Fyrsti Thief leikurinn, Thief: The Dark Project setti nýja staðla í gerð fyrstu persónu leikja og bjó til nýja leikjagerð þar sem áherslan var á að læðast um og láta lítið fyrir sér fara. Leikir Thief seríunnar hafa fengið góða dóma og hlotið fjölmargar viðurkenningar, en þar á meðal eru GameSpy Hall of Fame og GameSpot Greatest Games of All Time
Eidos-Montréal, sem vinnur einnig að leiknum Deus Ex™ 3, hefur ráðið til sín þá allra bestu til að vinna að Thief 4. Þeir sem vinna að leiknum eru með mikla reynslu í leikjaiðnaðinum og hafa unnið að fjölda stórra leikja.
“Við erum á fyrri stigum framleiðslu Thief 4, en þetta verkefni er mjög metnaðarfullt og spennandi fyrir Eidos,” segir Stéphane D’Astous, Framkvæmdarstjóri Eidos-Montréal. “Þó að það sé of snemmt fyrir okkur að gefa meiri upplýsingar um leikinn, þá erum við upptekin þessa stundina við að ráða þá bestu til að vinna að verkefninu til að tryggja að leikurinn verði einhver sá mest spennandi á markaðnum.”