Frétt

Frétt

Nýtt hálfvitalag í spilun.

Já nú hefur aldeilis dregið til tíðinda í Hálfvitalandi því að nú er nýtt lag með Ljótu hálfvitunum að fara í það sem fagmennirnir kalla „spilun“. Það þýðir að hljóðritun með einhverju ákveðnu lagi hefur verið sent á útvaprstöðvar í þeirri von að fólki finnist það skemmtilegt og vilji hlusta á það, hringi jafnvel í útvarpsfólk og trufli það við vinnu sína í þeim eina tilgangi að biðja það um að spila þetta tiltekna lag. Þessa iðju (þ.e. að setja lög „í spilun“) hafa hálfvitar ekki mikið stundað en reyndir menn úr bransanum segja að það sé sniðugt.

 

Lagið sem um ræðir heitir Lukkutroll og er samið af Baldri Ragnarsyni en hann orti líka textann ásamt þeim Eggerti Hilmarsyni og Þorgeiri Tryggvasyni. Hvort sem um tilviljun er að ræða eður ei verður þetta lag að finna á nýrri plötu Ljótu hálfvitanna sem kemur út núna í lok mánaðar og innihalda mun 13 hálfvita lög af öllum stærðum og gerðum.

 

www.ljotuhalfvitarnir.is

Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli