Frétt

Frétt

Trúbrot 1969 – 1972

Út er komið heildarsafn með hljómsveitinni Trúbrot í myndarlegri öskju. Askjan inniheldur allar fjórar plötur sveitarinnar „Trúbrot“, „Undir áhrifum“, „....lifun“ og „Mandala“. Þá eru tvær litlu plöturnar sem komu út 1970 sem aukalög á fyrstu plötunni. Á fyrstu plötunni er einnig sem aukalag „Breyttu bara sjálfum þér„ sem var ekki gefið út er platan kom út upphaflega, en var fyrst útgefið er platan kom fyrst út á geislaplötu. Með öskjunni fylgir einkar veglegur 52 síðna bæklingur þar sem saga sveitarinnar er rakin í máli og myndum. Það
er Jónatan Garðarsson sem fer yfir sögu þessarar einna merkustu hljómsveitar í íslensku poppi.

 

Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli