Frétt
Yusuf Islam með nýja plötu
Yusuf - Roadsinger Út er komin glæný plata með Yusuf Islam, sem margir þekkja betur undir nafninu Cat Stevens. Cat Stevens sló í gegn á áttunda áratug síðustu aldar með plötum á borð við “Tea For The Tillerman” og “Teaser And The Firecat” og lögum eins og “Wild World”, “Moon Shadow”, “Morning Has Broken” og “Father And Son”. Hann hætti skyndilega að gera tónlist undir lok áratugarins og tók upp Islamska trú og breytti nafni sínu í Yusuf Islam . Árið 2006 snéri hann aftur eftir 28 ára hlé og sendi frá sér plötuna “An Other Cup” sem fékk frábærar viðtökur. Upptökum á nýju plötunni “Roadsinger” var í höndum Yusuf og Martin Terefe, sem á að baki samstarf með James Morrison, Jason Mraz og Mörthu Wainwright. Lög af nýju plötunni verða einnig í söngleiknum “Moonshadow”, sem væntanlegur er á fjalirnar á árinu.