Frétt
Bob Dylan með glænýja plötu
Ný plata frá Bob Dylan
Goðsögnin Bob Dylan hefur sent frá sér plötuna Together Though Life. Platan er 35 hljóðversplatan hans, en þegar allar plötur eru teknar til þá hefur hann sent frá sér heilar 46 plötur. Síðasta hljóðversplatan hans er Modern Times, sem kom út árið 2006. En í fyrra gaf hann einnig út plötuna Tale Tale Signs sem er í Bootlegs útgáfuröðinni hans.
Modern Times sló í gegn þegar hún kom út og rauk beint á topp bandaríska Billboard-listans. Hún hefur selst í milljónum eintaka náð toppsætinu í átta löndum og komist á topp fimm í 22 löndum.
Nýja platan er rökrétt framhald Modern Talking og var tekin upp seint í fyrra. Platan er unnin í kjölfar lagsins Life is Hard sem Bob Dylan samdi fyrir kvikmynd franska leikstjórans Oliver Dahan, La Vie En Rose. Þess má geta að Together Through Life fór nýverið á toppinn í Bretland sem hefur ekki gerst í tugi ára.