Frétt
Nýjar plötur í viku 15
Neil Young - Fork On The Road Glæný plata frá Neil, sem fylgir eftir plötunni Chrome Dreams II frá árinu 2007. Platan er fáanleg með eða án DVD disks, þar sem hann tekur m.a. bítlalagið A Day In The Life á tónleikum. Queensryche – American Soldier Ameríska progrokksveitin með glænýja plötu, en sveitin hefur verið að senda reglulega frá sér plötur síðan 1984 og hátindinum náðu þeir árið 1990 með plötunni Empire. Stevie Nicks – The Soundstage Sessions Stevie Nicks – Live In Chicago DVD Stevie Nicks forsöngkona Fleetwood Mac hefur einnig verið öflug í gegnum árin sem sólótónlistarmaður. Hér er plata sem inniheldur upptökur með henni frá árinu 2007. Einnig nýlegir tónleikar á DVD. Static X – Cult of Static Sjötta hljóðversplata þessarar grjóthörðu metalrappsveitar. Flo Rida – R.O.O.T.S. Einn heitasti rappari heims með nýja plötu, en platan inniheldur m.a. stórsmellinn Right Round.