Frétt
Nýjar plötur í viku 14
Nýjar plötur í viku 14 Diana Krall - Quiet Nights Glæný plata frá Diönu Krall, en í þetta skiptið er hún á ballöðu og Bossa Nova tánum, en hér fær hún til samstarfs sama teymi og gerði með henni plötuna The Look Of Love. Hér tekur hún sígildar perlur á borð við The Boy From Ipanema, Everytime You Say Goodbye, How Can You Mend A Broken Heart og Walk On By. Quiet Nights er hennar tólfta plata. Mastodon - Crack The Skye Þungarokksveitin Mastodon kemur frá Atlanta í Bandaríkjunum og sló rækilega í gegn með síðustu plötu sinni Blood Mountain, sem kom út árið 2006. Nýja platan, Crack The Skye hefur verið að fá frábæra dóma hvarvetna. Platan er í tveimur útgáfum. PJ Harvey & John Parish - A Woman A Man Walked By Önnur platan sem Polly Jean Harvey gerir með John Parish, en 12 ár eru síðan þau gáfu út plötu saman. úr kvikmynd - Watchmen / OST Tónlistin úr einni vinsælustu mynd heimsins í dag. Annars vegar plata með lögunum úr myndinni (My Chemical Romance, Bob Dylan, Nat King Cole, Leonard Cohen, Jimi Hendrix ofl.) og hinsvegar “Scorið” úr myndinni sem samið er af Tyler Bates. JJ Cale - Roll On Glæný plata frá blúsaraum JJ Cale. Fyrsta hljóðversplata kappans í fimm ár, en í millitíðinni (2006) sendi hann frá sér plötuna The Road To Esccondido með Eric Clapton. Nightwish - Made In Hong Kong: Live 2CD Nightwish - Made In Hong Kong: Live DVD Nýlegir tónleikar á geislaplötu og DVD diski með finnsku sinfóníurokksveitinni Nightwish. Lisa Ekdahl - Give Me That Slow Knowing Smile Sænska söngkonan með nýja plötu, en eins og margir vita þá hefur hún heimsótt okkur til tónleikahalds í tvígang með skömmu millibili. Leonard Cohen - Live In London 2CD Leonard Cohen - Live In London DVD Kanadíska goðsögnin á tónleikum í London, þar sem hann tekur öll sín þekktustu lög. Fáanlegt á tvöfaldri geislaplötu og á DVD diski. Gavin DeGraw – FREE Þriðja plata söngvarans og lagahöfundarins Gavin DeGraw. Papa Roach – Metamorphosis Jacoby Shaddix og félagar í rokksveitinni Papa Roach slógu í gegn árið 2000 með laginu Last Resort. Síðan þá hafa þeir sent frá sér hverja plötuna á fætur annarri og hér er sú nýjasta. Yeah Yeah Yeah's - It's Blitz Þriðja hljóðversplata New York tríósins. Plata sem er að fá frábæra dóma: Q magazine *****, Mojo ****, Uncut ****, NME 8/10 Arcade Fire - Miroir Noir DVD Tónleikar og fleira með þessari rómuðu sveit frá Kanada. Fáanlegt í einfaldri og tvöfaldri útgáfu. Metro Station - Metro Station Poppsveitin Metro Station hefur verið að gera það gott með laginu Shake It. Hér er fyrsta breiðskífa sveitarinnar. Úr kvikmynd - Sound Of Music / OST: 40th Anniversary Minnum á tónlistina úr þessari klassísku kvikmynd, en Borgarleikhúsið er að setja þetta stykki upp á fjölum sínum fljótlega. Þessi útgáfa kom út fyrir nokkrum árum og inniheldur 11 aukalög sem ekki eru á upphaflegu útgáfunni, ásamt því sem bæklingurinn hefur verið betrumbættur.