Frétt
Australia - DVD og Blu Ray
Nicole Kidman og Hugh Jackman sýna snilldarleik í sögulegri kvikmynd sem gerist við upphaf síðari heimsstyrjaldarinnar. Ensk hefðarkona á ferðalagi um Ástralíu kemst þar í kynni við býsna sérstakan kúreka og heillandi frumbyggjabarn þegar hún tekur þátt í nautgriparekstri yfir hinar fögru en hrjóstrugu óbyggðir Ástralíu. En ófriðurinn er að hefjast og Japanir, sem hafa gert árás á Pearl Harbour, leggja nú til atlögu við borgina Darwin þar sem þau verða að reyna að finna hvert annað í ringulreiðinni og sprengjuregninu.
Aðalhlutverk : Nicole Kidman, Hugh Jackman
Bönnuð innan 12 ára
Íslenskur texti