Frétt

Frétt

SingStar® dettur í gírinn

SingStar® dettur í gírinn með
þráðlausum SingStar® hljóðnemum


• Algjört frelsi þegar þú syngur, dansar og kemur fram með nýju þráðlausu SingStar® hljóðnemunum
• Hljóðnemana er hægt að nota á PlayStation®2 og PLAYSTATION®3


 

Nú er tækifærið til að missa sig í SingStar®, því nú hefur Sony fyrirtækið gefið út þráðlausa hljóðnema fyrir SingStar leikina.  SingStar netsamfélagið hefur þegar gefið þessum nýju hljóðnemum topp dóma, en þessi magnaða græja veitir fullt frelsi þegar sungið er í SingStar.  Nú er ekkert að vanbúnaði að hoppa uppá borð eða taka sporið um leið og barkinn er þaninn.

Sony fyrirtækið fékk harða SingStar aðdáendur til að þróa hljóðnemana með sér til að tryggja að þeir væru sem best úr garði gerðir.  Ánægjuraddirnar létu ekki á sér standa, þar sem 99% aðspurðra gáfu þráðlausu hljóðnemunum hæstu einkun.

Þráðlausu hljóðnemarnir eru fullkomnir í hvaða SingStar partí sem er, þar sem auðvelt er að láta þá ganga á milli og er notkun þeirra mjög einföld og skemmtileg.  Nú geta harðir SingStar aðdáendur keyrt í gegnum lögin þráðlaust, meðal annars í nýja SingStar leiknum SingStar Queen sem kom út á dögunum.

Þráðlausu hljóðnemarnir eru með mun betri hljóðgæðum en áður og virka bæði fyrir PlayStation 3 og PlayStation 2.

Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli