Frétt

Frétt

Íslensk tónlist frá Senu í sumar.

Nú er óðum að skýrast hvernig íslensk tónlistarútgáfa Senu og Íslenskra tóna mun líta þetta sumarið. Útgáfan verður fjölbreytt sem endranær og ættu flestir að finna eitthvað við sitt hæfi.

 

Nú á vordögum er þegar komin út, undir merkjum COD Music, plata Ebergs, Antidote en hún hefur verið að fá frábæra dóma.

 

2. maí kemur út afskaplega eigulegur og veglegur kassi með öllum fjórum plötum hinnar stórmerkilegu sveitar Trúbrot. Sveitin fagnar 40 ára afmæli í sumar en eftirlifandi meðlimir hennar koma fram á Miningartónleikum um Rúnar Júlíusson þennan sama dag, 2. maí nk.

 

Önnur plata Ljótu hálfvitanna kemur út 25. maí en þeir slógu í gegn fyrir tveimur árum með sinni fyrstu plötu. Platan hefur enn ekki hlotið nafn og alls óvíst er hvort það breytist!

 

Papar mæra Gylfa Ægisson á nýrri plötu þar sem þeir flytja mörg af vinsælustu lögum Gylfa á sinn hátt. Platan sem líkast til mun heita Ég verð að dansa, kemur út 28. maí.

 

Í byrjun júní koma svo út lögin úr rokksöngleiknum Grease en hann verður frumsýndur 11. júní í Loftkastalanum.

 

Blue Lagoon Soundtrack - Volume 2, mixplata Margeirs Ingólfssonar lítur dagsins ljós í júní auk þess sem safn helstu laga og “sketsa” Tvíhöfða verður gefið út á tvöfaldri geislaplötu þann 17. júní.

 

Veistu hver ég var? er útvarpsþáttur sem slegið hefur í gegn á undanförnum mánuðum en hann verður að svakalegri 80’s safnplötu í byrjun júní. 

 

Stefán Karl Stefánsson vinnur nú að barna- og fjölskylduplötu í heimabæ sínum, San Diego, með hjálp nágranna sinna þeirra Gísla Rúnars Jónssonar og Veigars Margeirssonar. Afraksturinn kemur út í júní og ferðalangar fá mikið fyrir sinn snúð þegar næsta 100 laga safnið kemur út en það hefur vinnuheitið 100 íslensk í bílinn, tjaldið og grillið.

 

Í júlí kemur út eftirtektarverð plata frá Björgvin Halldórssyni en hún ber vinnuheitið BóBó og Hjartagosarnir. Kántrískotin plata í hrárri kantinum þar sem Björgvin og gestir syngja, bæði sundur og saman.

 

Pottþétt serían nær svo þeim áfanga að fylla fimmta tuginn í júlí þegar Pottþétt 50 kemur út.

 

Þess utan verða óvenju margar endurútgáfu eldri platna nú í vor. Vegna leitar Félags Hljómplötuframleiðenda, Rásar2 og Tónlist.is að 100 bestu plötum Íslandssögunnar mun Sena endurútgefa allmargar plötur sem lentu í 100 efstu sætunum þrátt fyrir að hafa verið ófáanlegar á geislaplötum um áraraðir. Meðal þessara platna eru:  Álfar Magnúsar Þórs Sigmundssonar, fyrsta plata Jet Black Joe og You Ain’t Here, Deluxe og Himnasending Nýdanskra, plata Bjartmars Guðlaugssonar Í fylgd með fullorðnum, GCD Bubba og Rúnars, fyrsta plata Spilverks Þjóðanna og Todmobile með Todmobile.

 

Að auki verður nokkur fjöldi annarra platna gefnar út á geislaplötu en enginn þeirra hefur áður verið fáanleg á geislaplötu. Þetta eru m.a. Start – En hún snýst nú samt, Dömufrí og Glaumbær Dúmbó og Steina , Guðrún Tómasdóttir – Sönglög Sigvalda og Selmu Kaldalóns og Íslensk þjóðlög, Hanna Valdís, Þrjú á palli ásamt Sólskinskórnum, báðar plötur Sumargleðinnar og Söngfuglarnir ásamt öðrum plötum.

Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli