Frétt
TÓNLEIKAR
HINN ÍSLENZKI ÞURSAFLOKKUR SNÝR AFTUR Á ÞORRA 2008
Í febrúarlok, á því komandi herrans ári 2008, verða stórtónleikar HINS ÍSLENZKA ÞURSAFLOKKS og CAPUT haldnir í Laugardalshöll. Þessar tvær sveitir, sem telja samtals um 30 hljóðfæraleikara, munu leggjast á eitt laugardaginn 23. febrúar og flytja öll helstu lög Þursaflokksins í viðhafnarútsetningum, en til gamans má geta þess að í febrúar á næsta ári halda Þursarnir upp á 30 ára afmæli sitt.
Lögin eru af uppleggi Þursanna, sem finna má á hljómplötum þeirra: "Hinn íslenzki Þursaflokkur", "Þursabit", "Á tónleikum", "Gæti eins verið" og söngleiknum "Gretti." Í flestum tilfella verða útsetningar laganna byggðar á upprunalegri útfærslu Þursaflokksins, en jafnframt spunninn nýr og enn þéttari vefur. Um verður að ræða sannkallaða og einstaka, tveggja tíma, tónlistarveislu.
CAPUT - hópurinn hefur sérhæft sig í flutningi nútímatónlistar og náð einstökum árangri. Hópinn skipa afskaplega fjölhæfir tónlistarmenn, sem margir leika á fleiri en eitt hljóðfæri og munu þeir fá tækifæri til að sýna allar sínar bestu hliðar. Guðni Franzson mun stjórna hljómsveitinni og þá verður frumflutt ný svíta eftir Ríkarð Örn Pálsson, góðvin Þursa til margra ára, sem mun byggja á Þursamúsíkinni.
Þursaflokkinn skipa sem fyrr;
- Ásgeir Óskarsson á trommum
- Egill Ólafsson sér um söng og hljómborð
- Rúnar Vilbergsson á fagott
- Tómas Magnús Tómasson á bassa
- Þórður Árnason á gítar
Staðgengill Karls Jóhanns Sighvatssonar heitins á Hammond orgelinu verður svo sjálfur Eyþór Gunnarsson.
::: UM ÞURSANA
Þursaflokkurinn kom fyrst fram í febrúar 1978 og starfaði óslitið til 1982. Eru flestir tónlistaráhugamenn sammála um að sveitin sé ein sú allra besta sem Ísland hefur alið og hefur hún í seinni tíð öðlast ansi goðsagnakenndan sess í íslenskri tónlistarsögu. Á ferlinum léku Þursar á nær 300 tónleikum í níu löndum. Þursar sömdu tónlist sem út kom á fimm hljómplötum, störfuðu með Íslenska Dansflokknum í Ballettinum "Sæmundi Klemenssyni" og ferðuðust og léku á dansýningarferðalagi um Norðurlönd. Þeir gerðu tvo sjónvarpsþætti fyir RÚV og þá tók hljómsveitin þátt í sýningu Leikfélags Reykjavíkur á söngleiknum Gretti. Þursar voru kosnir hljómsveit ársins 1979 í vinsældarkosningu DV, áttu auk þess hljómplötu ársins og söngvara ársins það sama ár. Sumarið 1979 settist hljómsveitin að í Kaupmannahöfn og gerði út þaðan og lék á fjölda tónleika og tónlistarhátíða á Norðurlöndum, auk þess sem ríkisútvarp Svíðþjóðar, Danmerkur og Finnlands gerðu veglega útvarpsþætti um hljómsveitina og tónlist hennar. Þá héldu Þursar til Hollands og Fríslands, þar sem sveitin lék á fjölda tónleika.
::: AÐ LOKUM
Þá má loks geta þess að Endurmenntunardeild Háskóla Íslands verður með margþáttað námskeið sem tengist tónleikunum, þar verður fjallað um íslenska tónlistararfinn, hvert Þursar sóttu efniviðinn og eins verða nýju útsetningarnar á efninu kynntar. Þá munu þátttakendur geta fylgst með æfingum Þursa og Capút og að endingu upplifað tónleikana.
Eflaust verða margir áhugasamir um að nálgast miða á væntanlega stórtónleika, en þá verður hægt að tryggja sér október og verður nánar tilkynnt um það innan skamms.