Frétt
100 bestu plöturnar eru fundnar
Undanfarna 10 virka daga hefur Rás 2 sagt frá 10 plötum á dag sem fylla listann yfir 100 bestu plötur Íslandssögunnar og nú er svo komið að listinn er fylltur og plöturnar eitt hundrað komnar í ljós. Sjá má niðurstöðuna, í stafrófsröð á www.tonlist.is/100bestu
Þann 4. maí hefst seinni hluti leitarinnar en þá er ætlunin að almenningur og dómnefnd raði þessum 100 plötum í sæti.
Ef rýnt er í listann kemur margt merkilegt í ljós. Þegar skoðað er hvaða flytjendur eru aðilar að flestum plötum á listanum koma kunnugleg nöfn strax fram; Björk Guðmundsdóttir tengist sjö plötum, Bubbi og hljómsveitir níu plötum, Sigur Rós á fimm plötur á listanum og Megas sjö plötur en það er Egill Ólafsson sem tengist flestum plötum eða ellefu talsins því Spilverk þjóðanna á þrjár plötur á listanum þar sem hann kemur við sögu, Megas og Spilverkið eina, Þursaflokkurinn aðrar fjórar og Stuðmenn þrjár. Samtals eru 61 skráður flytjandi að þessum plötum og koma þær frá 23 útgefendum.
Áratugirnir eru mis gjöfulir á góðar plötur samkvæmt niðurstöðunni. Íslenskar breiðskífur sem komu út á sjöunda áratugnum voru ekki sérlega margar en 3 þeirra rata á listann. 24 plötur frá árunum 1971 til 1980 teljast meðal þeirra 100 bestu, 19 plötur frá hinum alræmda níunda áratugi og 24 af þessum 100 plötum komu út frá 1991 til 2000. Ný öld hefst afar vel og skilar flestum plötum inn í valið eða 30 talsins.
Valið á þessum 100 plötum fór þannig fram að 1.990 einstaklingar kusu á tónlist.is og 100 manna dómnefnd skilaði einnig inn sínu áliti. Það er skemmst frá því að segja að almenningur og dómnefnd voru nokkuð samhljóða í skoðunum því 72 af plötunum 100 lentu í einhverjum af 100 efstu sætunum hjá bæði dómnefnd og almenningi. Hinar 28 plöturnar voru á topp 100 hjá öðrum hópnum og rétt utan topp 100 hjá hinum.