Frétt

Frétt

Regína - DVD

 

Regína (Sigurbjörg Alma Ingólfsdóttir) er ósköp venjuleg 10 ára stelpa í Reykjavík. Hún býr með móður sinni og dreymir um að komast í sumarbúðir. Dag einn uppgötvar hún að hún getur látið hluti gerast með því að syngja um þá. Hún og Pétur (Benedikt Clausen) vinur hennar ákveða að snúa á örlögin og hrinda af stað áætlun sem varðar framtíð þeirra og foreldra þeirra. Hinn óprútni hárkollu sölumaður, Ívar (Baltasar Kormákur), dúkkar óvænt upp og flækir áætlanir barnanna. Spennan magnast og fyrr en varir eru börnin orðin aðalhetjurnar í spaugilegu en jafnframt snúnu glæpamáli sem teygir m.a anga sína inn á elliheimilið þar sem móðir Regínu vinnur.

 

Aðalhlutverk : Sigurbjörg Alma Ingólfsdóttir, Benedikt Clausen

Leyfð fyrir alla aldurshópa

Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli