Frétt
X-Men Trilogy - DVD
X-MEN
Stökkbreyttar verur sem búa yfir ótrúlegum hæfileikum eru helsta von mannkyns í framtíðinni og um leið mesta ógnin. Undir stjórn Charles Xavier prófessors (Patrick Stewart) berst hópur sem þekktur er undir nafninu X-men fyrir friðsamlegri sambúð manna og stökkbrigðanna. En þegar eitt stökkbrigðið, Magneto, ljóstrar upp um áform sín að hefja stríð gegn mannkyninu verður hópurinn að koma í veg fyrir það og bjarga Jörðinni undan reiði óþokkans.
X-MEN 2
Hugh Jackman, Halle Berry og Ian McKellen fara á kostum í þessari framhaldsmynd sem talin er jafnvel betri en sú fyrri. Þegar forseta Bandaríkjanna er sýnt banatilræði notfærir William Stryker ofursti sér ótta almennings til að ná fram þeim vilja sínum að útrýma stökkbrigðunum af jörðinni. Þegar fyrsta atlagan mistekst og Xavier prófessor er rænt, verða þau sem eftir eru að taka saman höndum við Magneto, til að freista þess að bjarga prófessornum og koma í veg fyrir fyrirætlan Strykers, áður en öllum stökkbrigðum hefur verið útrýmt.
X-MEN 3
Hér eru mættar til leiks gamalkunnar hetjur og illmenni auk nýrra persóna svo sem Angel, Beast, Juggernaut og Colossos. Þegar ný lækning er uppgötvuð geta stökkbrigðin valið um hvort þau halda ofurkröftunum eða kjósa að gefa þá upp á bátinn og verða eðlileg. Hinn friðsami leiðtogi stökkbrigðanna, Charles Xavier, er á öndverðum meiði við hinn herskáa Magneto og brátt er ljóst að stríð þessara fylkinga er óumflýjanlegt!
Bönnuð innan 14 ára
Íslenskur texti