Frétt
Skógarstríð 2
Elli er yfir sig ástfanginn af Gísellu en leiðin upp að altarinu lengist verulega þegar hópur fordekraðra gæludýra rænir herra Sperðli og hyggst skila honum aftur til eiganda síns. Búi, Elli, McSquizzy og hin skógardýrin halda í björgunarleiðangur til að frelsa vin sinn og fyrr en varir eru þau stödd í herbúðum óvinanna, heimi gæludýranna. Foringi þeirra, púðluhundurinn Fúffi, er ekki tilbúinn að sleppa herra Sperðli baráttulaust, en er hugsanlegt að púðluhundur geti borið sigur af stórum grábirni? Nær Elli einhvern tíma að giftast Gísellu? Svörin er að finna hér í þessari bráðskemmtilegu teiknimynd.
Leyfð fyrir alla aldurshópa
Íslenskt tal - Íslenskur texti