Frétt
Max Payne
Lögreglumaðurinn Max Payne ber takmarkaða virðingu fyrir reglum og hefur engu að tapa. Hann er staðráðinn í finna þá sem myrtu fjölskyldu hans og koma fram hefndum, en rannsóknin leiðir hann á slóðir þar sem óljós mörk eru á ímyndun og raunveruleika. Ráðgátan verður stöðugt flóknari, á endanum þarf Max að berjast við öfl sem ekki eru af þessum heimi og spurning hvort honum takist að halda geðheilsunni.
Aðalhlutverk : Mark Wahlberg, Mila Kunis
Bönnuð innan 14 ára
Íslenskur texti