Frétt
Dr. Dolittle 5
Maya Dolittle gefur drauminn um að verða dýralæknir upp á bátinn og þau Lucky halda til Los Angeles þar sem hún fær starf við spjallþátt um dýr undir stjórn hinnar frægu og vellauðugu Tiffany Monaco. En einmitt þegar Lucky er orðinn ástfanginn af undurfallegri, hreinræktaðri tík verður Maya ósátt við fáránlegar hugmyndir Tiffany um hvernig eigi að hjálpa dýrum. Og þegar Maya er viss um að hún sitji þarna föst til eilífðar og verði aldrei dýralæknir kemur Lucky til hjálpar ásamt vinkonu sinni og heilum hópi annarra dýra og bjargar málunum.
Aðalhlutverk : Kyla Pratt, Jason Bryden
Leyfð fyrir alla aldurshópa
Íslenskur texti