Frétt
Sena frumsýnir Draumalandið
Sena frumsýnir Draumalandið á miðvikudag 8. apríl í Smárabíói og Háskólabíói. Þetta er mögnuð og áhrifamikil kvikmynd í fullri lengd í leikstjórn Þorfinns Guðnasonar og Andra Snæs Magnasonar. Draumalandið er líklega eitt viðamesta heimildarmyndaverkefni sem ráðist hefur verið í á Íslandi. Myndin stefnir saman tilfinningum, vonum og væntingum, gömlu og nýju myndefni svo úr verður stór og epísk heimildarmynd sem nýtur sín hvergi betur en á hvíta tjaldinu.
Vinsamlegast sjá press kit, trailer og ljósmyndir í prentgæðum sem og aðrar upplýsingar á heimasíðu myndarinnar: