Frétt
Risastór útgáfa
Það er sannkölluð Megavika í útgáfu á tölvuleikjum þessa vikuna og þar dregur vagninn hinn dagfarsprúði Fifa leikur, en Fifa 08 er mættur á allar gerðir leikjatölva og þar með talið PlayStation 3, en þetta er fyrsti fótboltaleikurinn á PlayStation 3. Warhawk er mættur á PlayStation 3, en þar er á ferðinni einhver allra ferskasti netleikur seinni tíma..skotleikurinn Enemy Territory Quake Wars er mættur á PC...framhaldið af Juiced eða Juiced 2 Hot Import Nights er dottinn inn á PlayStation 2, Xbox 360 og Nintendo DS...þetta og margt margt fleira..