Frétt
Eberg sendir frá sér plötuna Antidote.
Antidote ****. “Eberg fylgir eftir hinni frábæru Voff Voff með fínni plötu. Nútímaleg tónlist með sterkar rætur í sígildri popplagahefð” Trausti Júlíusson Fréttablaðinu.
Í dag sendir tónlistarmaðurinn Einar Tönsberg frá sér sína þriðju breiðskífu, Antidote. Einar, sem er betur þekktur undir nafninu Eberg, hefur verið afspyrnu iðinn við kolann síðustu árin enda hafa plöturnar Plastic Lions og Voff Voff fengið dreifingu víða um heim og mikið lof hvarvetna. Tónlist Ebergs hefur vakið mikla athygli en lög af Voff Voff fengu m.a. að njóta sín í sjónvarpsþáttunum vinsælu The O.C. og Veronica Mars auk þess sem lagið Inside Your Head hljómaði í fyrstu iPhone auglýsingunni Vestanhafs.
Vinnan við Antidote hófst í janúar 2008 með ferð til Pescara á Ítalíu með hinum hrynfasta Nóa Steini þar sem teknir voru upp grunnar og samin lög. Í bakaleiðinni var komið við í Oxfordskíri og föndrað aðeins með hljóð en að öðru leyti er platan öll unnin á Íslandi. Upptökur gengu vel nema þegar vel viðraði og sumarbústaðarsmíði truflaði annars vel einbeittan listamanninn.
Líkt og áður semur og syngur Eberg flest laga sinna en á Antidote fær hann þó aðstoð frá góðum gestum. Í laginu Reykjavík nýtur hann krafta Barða Jóhannssonar en í sameiningu sömdu þeir og hljóðrituðu lagið. Tvær söngkonur koma við sögu en önnur þeirra hefur sungið og spilað inn á fyrri útgáfur Ebergs. Þetta eru þær Bird (Janie Price) sem leikur einnig á selló á plötunni og Rósa Birgitta, betur þekkt sem Diva De la Rosa úr hljómsveitinni Sometime. Þrír trymblar koma við sögu en það er þó Nói Steinn sem leikur í öllu lögum nema tveimur þar sem þeir Arnar Þór Gíslason og Luke Watson slá taktinn. Eberg leikur á öll önnur hljóðfæri ásamt því að sjá um upptökustjórn og hljóðblöndun plötunnar.
Margir kannast nú þegar við lagið The Right Thing To Do úr kvikmyndinni Reykjavík-Rotterdam en þar var lagið sungið á íslensku og bar nafnið Niðurlönd. Um þessar mundir er lagið One Step At The Time farið að hljóma ótt og títt á öldum ljósvakamiðla og hafa viðtökur verið góðar. Antidote er nú þegar komin út á Japansmarkaði undir merkjum Rallye en útgáfa í Bretlandi, Frakklandi og Þýskalandi er áætluð seinna á árinu.
Þess má að lokum til gamans geta að Plastic Lions og Voff Voff komust báðar á lista yfir tilnefndar plötur í vali Rásar 2, Félags hljómplötuframleiðenda og Tónlist.is á 100 bestu plötum Íslandssögunnar.
Útgáfutónleikar Antidote verða haldnir miðvikudaginn 22. apríl á Sódómu Reykjavík en það mun vera síðasti vetrardagur. Frekari upplýsingar verða veittar þegar nær dregur.
Það er Cod Music sem gefur út Eberg á Íslandi.
Umsagnir um fyrri plötur Ebergs:
“One of the most original laptop troubadours around.” The independent 4/5
“Voff Voff’ is an atmospheric master piece which oozes quality.” Clash
“Voff Voff is a glorious treasure trove.” Music Week
“a lo-fi dilettante who invests his digital pop with warmth and whimsy.” The Times
“Ofursvalt nútímapopp” 9/10 Sirkus/DV
“The tunes are catchy and the sounds are atmospheric and imaginative.” Grapvine
“Vandað rafmagnspopp” 4/5 Morgunblaðið
Myspace síða Ebergs - http://www.myspace.com/eberg1