Frétt
Jak og Daxter™ sameinast aftur!
Þetta magnaða tvíeyki er væntanlegt aftur í leiknum Jak and Daxter™: The Lost Frontier á bæði PSP™ (PlayStation®Portable) og PlayStation®2
Hetjan Jak og hinn uppátækjasami félagi hans Daxter eru komnir saman á ný...en þetta er í fyrsta sinn sem þeir snúa bökum saman á PSP™ (PlayStation®Portable). Búið ykkur undir nýjasta leikinn í hinni geysivinsælu Jak og Daxter seríu, Jak and Daxter™: The Lost Frontier frá Sony Computer Entertainment. Búið ykkur undir stanslausan hasar og ævintýramennsku, þar sem tvíeykið þvælist um dularfull lönd í tilraun sinni til að bjarga plánetu sinni frá eyðileggingu. Takið þetta einstaka ævintýri með ykkur í ferðalagið á PSP™, eða spilið leikinn heima á PlayStation®2 – báðir leikirnir koma út í haust.
Leikurinn hefst þar sem síðasti leikur þeirra félaga endaði, en Jak og loðni vinur hans Daxter hjálpa vinkonu sinni Keira, en hennar verkefni er að bjarga heiminum frá hinu illa. Umhverfi plánetunnar er að deyja smám saman og þurfa félagar okkar tveir að bjarga henni frá ógn „dark eco“.
Leikmenn byrja leikinn fótgangandi og þurfa að hlaupa og hoppa um hin ýmsu landssvæði, en þegar líður á leikinn fá leikmenn tækifæri til að fljúga um í einni af fimm mismunandi flugvélum leiksins. Hlátur og fjör er alltaf skammt undan þar sem Jak og Daxter sameinast, enda Daxter alltaf í ruglinu til að vega upp alvarleika Jak. Í leiknum verður nýtt vopn eða svokallaður Gunstaff og nota leikmenn hann til að berjast við óvini í loftinu og til að berjast við sjóræningja sem ferðast um loftin blá.
Allt frá því fyrsti leikurinn um Jak og Daxter kom út, árið 2001, hefur serían verið mjög vinsæl og hafa leikir hennar selst í meira en 6 milljónum eintaka í Evrópu og hefur serían slegið 7 heimsmet samkvæmt heimsmetabók Guinness. Allir leikir seríunnar fylgja Jak og Daxter eftir þar sem þeir reyna að skapa jafnvægi milli hins góða og illa á plánetu sinni.