Frétt
SECRET LIFE OF BEES
Hin 14 ára Lily Owens býr hjá ofbeldisfullum og reiðum föður en veit afar lítið um móður sína og á endanum flýr hún að heiman ásamt fóstru sinni og vinkonu, Rosaleen. Þær enda í litlum bæ í Suður-Karólínu þar sem Boatwright-systurnar þrjár taka hana að sér, en þær rækta býflugur. Lily, sem aldrei áður hefur kynnst ástúð, virðingu og andlegri auðlegð, uppgötvar að stundum er nauðsynlegt að fara að heiman til að finna það sem maður dreymir um.