Frétt

Frétt

BEITIR SVERÐI TIL AÐ NÁ FRAM BLÓÐUGUM HEFNDUM!

Atari hefur tilkynnt að Afro Samurai leikurinn sé kominn út á PLAYSTATION 3 og XBOX 360.  Hér er á ferðinni miskunarlaus hasarleikur sem snýst um hefnd og aftur hefnd.  Afro Samurai sameinar það flottasta sem við þekkjum frá Hollywood kvikmyndunum, það heitasta sem era ð gerast í hip-hop tónlistinni og anime stílnum.

Leikurinn er byggður á samnefndum teiknimyndum þar sem Samuel L. Jackson fer með aðalhlutverkið og er framleiðandi.  Í Afro Samurai fara leikmenn í hlutverk einmanna stríðsmanns sem þvælist um heiminn í leit að morðingja föður síns, en för hans dregur hann djúpt inní leyndardóma Samurai hefðanna.  Leikurinn inniheldur þekktar persónur úr teiknimyndunum og er allt aukaefni leiksins gert með aðdáendur myndanna í huga.  Talsetning er í höndum Samuel L. Jackson og tónlistin er gerð af RZA úr Wu Tang Clan.

Grafík leiksins er einstaklega vel gerð og frumleg og gefur hún leiknum einstakt útlit og stemming, þar sem Afro berst við alla þá sem á vegi hans verða.  Leikurinn inniheldur fullkomið bardagakerfi þar sem leikmenn geta aflimað óvni sína með nákvæmni skurðlækna og þarf maður oftar en ekki að láta til sín taka með því að kljúfa óvini sína í tvennt.  Afro Samurai hendir leikmönnum í skó töffara sem elskar sverð og svala tónlist.

Frekari upplýsingar um leikinn má finna á : www.bloodisbeautiful.com. For more information about Afro Samurai, please visit www.afrosamurai.com.

Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli