Frétt
100 bestu plötur Íslandssögunnar.
Val á 100 bestu plötum Íslandssögunnar er hafið í samstarfi Félags Hljómplötuframleiðenda, Rásar 2 og Tónlist.is. Þessa dagana stendur yfir fyrsti hluti valsins þar sem öllum gefst kostur á að koma á framfæri tillögum að plötum sem komið geta til greina en fyrir var búið að velja um það bil 400 plötur. Sjá: www.tonlist.is/100bestu
Næst komandi föstudag hefst svo hið eiginlega kjör þar sem bæði almenningur og sérstök 100 manna dómnefnd velja 100 bestu plöturnar, af þessum langa lista án þess þó að raða þeim í sæti.
Ætlunin er að kynna niðurstöðu dómnefndar og almennings á því hvaða plötur skipa 100 efstu sætin (í stafrófsröð) á Rás 2 dagana fyrir sumardaginn fyrsta og hefja með því Íslenskt tónlistarsumar. Þegar listinn hefur verið skorinn niður í 100 plötur tekur seinni hluti kjörsins við þar sem almenningur og dómnefndin raða plötunum í sæti. Hina endanlögu niðurstöðu er svo ætlunin að kynna 17. júní.