Frétt
Rockstar Games gefa út Max Payne 3 í vetur
Rockstar Games, hafa tilkynnt að þeir séu að vinna að leiknum Max Payne 3, en hann er væntanlegur í vetur á PC, PlayStation 3 og Xbox 360. Leikurinn er gerður af Rockstar Vancouver, en Max Payne 3 segir sögu af lögreglumanni sem kominn er á eftirlaun, en er fastur í heimi spillingar, ringulreiðar og ofbeldi.
Í þessari margverðlaunuðu seríu fara leikmenn í hlutverk Max Payne, en hann er grjótharður lögreglumaður í New York borg, sem á sér aðeins eitt markmið en það er að hefna dauða fjölskyldu sinnar. Þessi nýjasti leikur Max Payne seríunnar inniheldur þá klassísku hluti og þann yfirdrifna hasar sem aðdáendur hennar elska, en á sama tíma er saga Max Payne tekin í nýjar áttir.
“Við erum að opna nýjan kafla í lífi Max með þessum leik,” segir Sam Houser, stofnandi Rockstar Games. “Við höfum aldrei séð Max á þann hátt sem hann sést hér, hann er eldri, reyndari og kaldhæðnari en áður. Við munum upplifa niðursveiflu í lífi hans eftir atburði Max Payne 2 og munum verða vitni að hans síðasta séns í lífinu til að bjarga sjálfum sér frá glötun.”
Eftir að hafa yfirgefið lögregluna í New York og í raun borgina sjálfa, hefur líf Max farið versnandi. Svikinn og langt frá sínum heimslóðum, finnur Max sig fastan í borg uppfullri af ofbeldi og blóðsúthellingum, til að komast að sannleikanum og um leið komast frá þessum stað þarf Max að nota vopnin sín og innsæi.
Max Payne 3 mun verða gefinn út í vetur á PC, PlayStation 3 og Xbox 360.
Frekari upplýsingar má finna á www.rockstargames.com/maxpayne3