Sena frumsýnir Killshot
Sena frumsýnir Killshot á föstudag 20. mars í Smárabíói og Regnboganum. Þetta er æsispennandi þriller í fantafínni leikstjórn John Madden gerð eftir sögu meistara Elmore Leonard með Diane Lane og Mickey Rourke í aðalhlutverkum. Myndin fjallar um hjón (Diane Lane og Thomas Jane) sem eru sett í vitnavernd eftir að hafa orðið vitni að ákveðnu atriði sem tengist eftirlýstum leigumorðingja mafíunnar (Mickey Rourke). Hjónin halda að þau séu örugg en eru í raun hundelt af leigumorðingjanum og félaga hans, ungum geðveikum morðingja leikin af Joseph Gordon-Levitt! Uppgjör er óflýjanlegt í lokin loksins þegar morðingjarnir hafa uppi á hjónunum með ófyrirséðum afleiðingum!
Sjá íslenska heimasíðu myndarinnar þar sem hægt er m.a. að skoða trailer (stiklu) úr myndinni:
/killshot/