Frétt

Frétt

Sena frumsýnir Bláa fílinn

Sena frumsýnir Bláa fílinn (The Blue Elephant) á föstudag 20. mars í Smárabíói, Háskólabíói, Laugarásbíói og Borgarbíói Akureyri. Um er að ræða frábæra teiknimynd fyrir alla fjölskylduna með íslensku tali um lítinn bláan fíl sem verður viðskila við mömmu sína þegar hann fer að leita að pabba sínum. Ungi fílinn lendir í mörgum og miklum hremmingum og ævintýrum og kemst að því að pabbi hans var frægur bardagafíll sem lét lífið í miklum bardaga við annan fíl. Blái fíllinn stækkar og verður á endingu arftaki pabba síns sem mikill leiðtogi og bardagafíll. Hann finnur mömmu sína og býr sig undir mikinn bardaga við fílinn ógurlega sem drap pabba hans. Þetta er mögnuð og stórskemmtileg mynd um vináttu, ást og hugrekki fyrir unga sem aldna.

Íslensk talsetning var í höndum Stúdíós Sýrlands og í leikstjórn Rósu Guðnýjar Þórsdóttur og allir okkar fremstu leikarar ljá raddir sínar í myndinni m.a. Björgvin Franz Gíslason, Jóhann Sigurðarson, Sigurður Sigurjónsson, Víðir Guðmundsson, Margrét Eir og Jóhanna Vigdís Arnardóttir.

Ég vek athygli ykkar á því að tveir unglingar eru að "deputera" í myndinni: Gunnar Ólafsson, 15 ára, leikur aðalhlutverkið Khan Kluay og Vigdís Hafliðadóttir, 14 ára, leikur Khon Suay.

Vinsamlegast hjá íslenska heimasíðu myndarinnar þar sem hægt er að finna íslenskan trailer:

www.sena.is/blaifillinn

Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli