Frétt

Frétt

Tölvuleikir Vikunnar

 
Nýjasti leikurinn í SingStar seríunni.  Nú er spjótunum beint að hinni heimsfrægur rokksveit Queen.  Leikurinn inniheldur 20 af bestu lögum hljómsveitarinnar sem leikmenn geta sungið einir og sér eða í keppni við aðra.  Einhver harðasti SingStar pakkinn hingað til.

 


Magnaður skotleikur sem spilast í gegnum netið.  Hér fara leikmenn í hlutverk sérsveitarmanna, en leikurinn inniheldur sérsveitir á borð við US Navy Seals og fleiri harðar.  Hér geta allt að 32 keppt saman í gegnum netið.

 


Frábær safnpakki fyrir þá sem lifðu hina gömlu góðu tíma Sega Mega Drive tölvunnar.  Pakkinn inniheldur meira en 40 af bestu leikjum Sega í gegnum tíðina og eru þar smellir á borð við Sonic leikina, Shinobi, Golden Axe og margir fleiri.

 


Þriðji leikurinn í Resistance seríunni.  Nú berst baráttan til Evrópu og þurfa leikmenn að berjast gegn hinum illvígu Chimera kvikindum sem hafa þróað sig á næsta stig og hreiðrað um sig í stórborgum Evrópu.  Frábær þriðju persónu skotleikur sem heldur áfram hinni vönduðu sögu Resistance.

 


Þá er loks komið framhaldið af Patapon, en hér er á ferðinni frumlegur og flottur leikur sem er blanda af rythmaleik og herkænskuleik.  Að þessu sinni geta leikmenn valið úr fleiri herdeildum og geta notað fleiri möguleika til að stýra her sínum til sigurs.

 


Vandaður pakki sem inniheldur meira en 40 mini leiki þar sem Simsarnir eru í aðalhlutverki.  Hér geta allt að fjórir keppt saman.  Leikmenn geta búið til sínar eigin persónur og notað þær til að sigrast á vinunum.

 


Nýjasti leikurinn í hinni margverðlaunuðu Codename Panzers seríu, en hér er sjónum beint að Kaldastríðinu, en samkvæmt söguþræði leiksins síður allt uppúr og Bandaríkjamenn og Rússar tryllast og fara í hár saman.

 


Nýjasti leikurinn í House of the Dead seríunni.  Sem fyrr eru leikmenn að skjóta niður uppvakninga, en leikurinn þykir einn sá besti í seríunni, enda lúkk og spilun uppá sitt besta.

 


Hasarleikur sem tveir geta spilað í gegnum saman.  Hér fer saman fjörug spilun, bikini og uppvakningar.  Klárlega blanda sem allir ættu að hafa gaman að.  Leikurinn kemur út í sér útgáfu fyrir Wii og einnig í sér útgáfu fyrir Xbox 360.

 


Hér er Svampur Sveinsson mættur í brjáluðu fjöri, þar sem hann þarf að afgreiða hamborgara eins og vindurinn hjá hinum vinsælu Klemmaborgurum.  Einhver mesta hamborgarakeppni er framundan og ljóst að Svampurinn þarf að missa sig í ruglinu.

 


Glænýr leikur þar sem menn geta rennt sér niður svaðalegar brekkur á skíðum og snjóbrettum.  Þeir hörðustu geta notað Wii jafnvægisbrettið til að renna sér niður.  Einn fyrir alla fjölskylduna.

Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli