Frétt

Frétt

Íslensk afþreying ákveður að ganga að kauptilboði í Senu

Stjórn Íslenskrar afþreyingar hf. hefur gengið að  tilboði  Garðarshólma Rekstrarfélags í öll hlutabréfin í Senu að undangengu formlegu söluferli . Tilboðið, sem er með fyrirvara um niðurstöður áreiðanleikakönnunar, metur heildarvirði Senu á 500 m.kr.  Garðarshólmi yfirtekur engar skuldir frá Íslenskri afþreyingu við söluna.

 


Straumur fjárfestingabanki hf. annaðist  formlegt söluferli  á Senu. Söluferlið hófst í  janúar s.l. og óskuðu þá 20 aðilar eftir formlegri þátttöku. Átta aðilar skiluðu inn óskuldbindandi tilboðum í félagið fyrir 5. febrúar s.l.  Í framhaldinu var gengið til viðræðna við þá er höfðu lagt fram hagstæðustu tilboðin en frestur þeirra til að skila inn bindandi tilboði rann út í gær.
Capacent Fyrirtækjaráðgjöf var ráðgjafi Garðarshólma í ferlinu.

 


Sena er stærsta afþreyingarfyrirtæki landsins og felur starfsemin í sér innflutning og sölu á tónlist, kvikmyndum og tölvuleikjum ásamt því að skipuleggja atburði af ýmsum toga, með íslenskum og erlendum listamönnum. Sena rekur verslanir Skífunnar og kvikmyndahúsin Smárabíó, Háskólabíó, Regnbogann og Borgarbíó Akureyri.

 


Garðarshólmi er í eigu Jóns Diðriks Jónssonar og Magnúsar Bjarnasonar. Gert er ráð fyrir aðkomu Björns Sigurðssonar framkvæmdastjóra Senu og lykilstjórnenda í kaupunum. Jón Diðrik Jónsson mun verða stjórnarformaður félagsins en hann hefur langa reynslu af neytendamarkaðsmálum í gegnum stjórnunarstörf hjá Coca-Cola í Asíu og Evrópu og sem forstjóri Ölgerðarinnar Egils Skallagrímssonar hf.

 


Nánari upplýsingar veitir Ari Edwald, stjórnarformaður Íslenskrar afþreyingar.

Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli