Frétt

Frétt

Sena frumsýnir Valkyrie á föstudag 30. jan

Sena HEIMSfrumsýnir Valkyrie á föstudag 30. jan í Smárabíói, Háskólabíói og Borgarbíói Akureyri. Um er að ræða metnaðarfullt stórvirki frá meistara Bryan Singer (The Ususal Suspects og X-Men 2) með Tom Cruise í aðalhlutverki. Myndin fjallar um tilræði við Hitler árið 1944 og var hugmyndin að kenna SS um morðið og virkja herinn í yfirtöku á landinu og semja um frið við bandamenn. Planið gekk undir nafninu Operation Valkyrie og var leitt af Claus von Stauffenberg sem fylgdi sinni eigin samvisku og var á móti Þýskalandi Hitlers og áleit að Hitler væri að stefna landinu í glötum sem og hann gerði. Með önnur hlutverk í þessu frábæra meistarastykki fara þungaviktaleikararnir Kenneth Branagh, Bill Nighy, Tom Wilkinson, Terence Stamp og Eddie Izzard.

Sjá heimasíðu myndarinnar:

http://sena.is/valkyrie

Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli