Frétt

Frétt

Græna ljósið frumsýnir Vicky Cristina Barcelona

Græna ljósið frumsýnir núna á föstudag í Háskólabíói myndina Vicky Cristina Barcelona, sem fer nú mikla sigurför um heiminn og rakar til sín tilnefningum og verðlaunum.

Stórleikararnir Javier Bardem, Penélope Cruz og Scarlett Johansson fara á kostum í spænsku sólinni og gagnrýnendur eru sammála um að Woody Allen hafi ekki verið ferskari í mörg ár.

Um myndina
New York lék stórt hlutverk hjá Woody Allen í myndum á borð við Manhattan en hér er það Barcelona sem er leikvöllurinn fyrir ástarævintýri Vicky og Cristinu. Þessar tvær ungu stúlkur frá Bandaríkjunum ákveða að eyða einu sumri á Spáni og hitta frjálslegan listamann (Javier Bardem) og gullfallega en geðveika fyrrverandi eiginkonu hans (Penélope Cruz). Vicky (Rebecca Hall) er jarðbundin og um það bil að giftast. Cristina (Scarlett Johansson) er ævintýragjörn og hvatvís. Þegar þessar fjórar manneskjur flækjast saman í vef kynlífs og ásta þá skapast bráðfyndin ringulreið að hætti meistara Woody Allen.

Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli