Frétt
LADDI 6-TUGUR
Með sýningunni náði gestafjöldi 25.000 manns og gaman er frá því að segja að uppselt varð á lokasýninguna um miðjan júní.
Í tvær vikur var því um gríðarlega umframeftirspurn að ræða og þegar fólk frétti að hér væri um lokasýningu að ræða varð allt vitlaust; símtölum og póstum rigdni yfir okkur og það er greinilegt að þrátt fyrir þann gríðarlega fjölda sem hefur nú þegar séð sýninguna eru greinilega fjölmargir sem eiga enn eftir að fara.
En nú þarf enginn að örvænta því nú hefur verið ákveðið að hefja leikinn aftur í haust. Fyrstu tvær sýningar haustsins eru 23. og 24. ágúst og miðasala á þessar sýningar er hafin. Sýningin er nú þegar orðn ein allra vinsælasta grínsýning sem sett hefur verið á laggirnar hérlendis og við hvetjum áhugasama til að tryggja sér miða í tæka tíð.
Höfundar sýningarinnar eru Laddi og Gísli Rúnar og er um að ræða blöndu af splunkunýju efni og klassísku efni frá ferli Ladda. Björn Björnsson annast sviðsetningu og hljómsveitarstjóri er Hjörtur Howser. Ásamt Ladda koma fram Steinn Ármann, Halli og Eggert Þorleifs.
Miðasala er hafin hjá Borgarleikhúsinu og á www.midi.is og þar má sjá þær sýningar sem eru í boði hverju sinni.