Frétt

Frétt

Kristján Jóhannsson og Sena í eina sæng

Kristján Jóhannsson og Sena hafa gert með sér samstarfssamning til næstu 5 ára um víðtækt samstarf á Íslandi. Sena tekur að sér útgáfu á gömlu og nýju efni Kristjáns og auk þess mun Bravó, tónleika- og umboðsarmur Senu, sjá um allt tónleikahald og umboðsmennsku fyrir Kristján næstu árin.

 


Búast má við öflugri útgáfu hérlendis með Kristjáni í kjölfar samningsins. Reikna má með veglegri ferilsútgáfu með eldra efni og allt að þremur nýjum hljómplötum næstu fimm árin. Fyrstu afurðir samstarfsins líta væntanlega ljós strax á næsta ári. Eiður Arnarsson, útgáfustjóri Senu fagnar samstarfinu. "Kristján er einn merkasti listamaður þjóðarinnar og það er okkur mikið gleðiefni að fá hann til liðs við okkur. Við hyggjum á öfluga útgáfu glæsilegra hljómplatna með Kristjáni frá og með næsta ári. Ég get lofað því að honum verður gert hátt undir höfði hjá okkur og þjóðinni verður boðið upp á afburða vandaðar útgáfur frá þessum magnaða listamanni sem við höfum séð allt of lítið af síðustu árin", segir Eiður.

 


Ísleifur Þórhallsson hjá Bravó fagnar því einnig að taka að sér tónleikahald og umboðsmál Kristjáns hér á landi. "Eftir vel heppnaða íslenska stórtónleika á okkar vegum síðustu ár á borð við Megar & Senuþjófana, Þursana & Caput, Bubba & Stórsveitina, Björgvin og Sinfó, Jólagesti Björgvins og Minningartónleika Vilhjálms Vilhjálmssonar liggur beinast við hjá okkur að einbeita okkur enn frekar að íslensku tónleikahaldi næstu misserin, þar sem þeir hafa gengið hvað best og oftar enn ekki betur en tónleikar með innfluttum erlendum stórstjörnum. Í tilfelli Kristjáns má segja að við séum að flytja heim til landsins íslenska stórstjörnu og er það mjög spennandi. Báðir aðilar prófuðu að vinna saman nýlega í kringum Jólagesti Björgvins, þar sem Kristján sló í gegn og gekk það samstarf frábærlega. Næsta mál er að leggja grunninn að sannkölluðum stórtónleikum með Kristjáni á næsta ári og verður það einstaklega spennandi verkefni."

 

 

Björn Sigurðsson, framkvæmdastjóri Senu, segir að Kristján og Sena eigi afskaplega vel saman. "Kristján er risi í söngheiminum og í Senu fyrirfinnst öll sú þekking, reynsla og sambönd sem þarf á öllum sviðum til að hlúa að hans ferli eins og best verður á kosið næstu árin. Á einum stað fær hann alla þá sérfræðiþekkingu í útgáfu, tónleikahaldi og umboðsmálum sem þarf til að tryggja list

Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli