Frétt

Frétt

Laddi 6-tugur: 15 þúsund eintök uppseld hjá útgefanda

Eiríkur Fjalar áritar á laugardaginn í Skífunni Kringlunni
Laddi 6-tugur kom út á DVD fyrir tæpum tveimur vikum og hafa viðbrögðin verið með miklum ólíkindum. 15.000 eintök voru framleidd og fyrirfram var búist við að slíkt magn myndi duga fram yfir jól og vel það, enda seljast DVD diskar að meðaltali í 3 - 4.000 eintökum og þau tilfelli þar sem diskar hafa selst í meira en 15.000 eintökum hérlendis eru sennilega teljandi á fingrum annarrar handar.

 


Skemmst er frá því að segja að þessi 15.000 eintök, sem áttu að duga fram yfir jól, eru nú uppseld á innan við tveimur vikum. Búið er að panta 5.000 eintök til landsins í viðbót og eru von á þeim strax eftir helgi. Þessi diskur stefnir s.s. hraðbyri í að verða söluhæsti diskur sem gefinn hefur verið út hérlendis. Er það vel við hæfi þar sem sýningin sjálf er ein sú allra vinsælasta sem sett hefur verið upp hér á landi.

 


Eiríkur Fjalar áritar á laugardaginn í Skífunni
Laddi hefur síðustu helgar verið duglegur að hitta aðdáendur sínar og árita diskinn. Hvert sem hann fer myndast langar raðir og á hann oft erfitt með að komast í gegnum allan fjöldann án þess að verða handlama.

 


Nú ætlar góðvinur Ladda, sjálfur Eiríkur Fjalar, að hjálpa vini sínum og leysa hann af hólmi næstu helgi. Eiríkur ætlar að mæta í eigin persónu og fullum skrúða í Skífuna Kringlunni kl. 15:00 næsta laugardag, hitta fólk og árita diskinn. Við hvetjum fólk á öllum aldri til að gera sér glaðan dag á laugardaginn og hitta Eirík Fjalar í eigin persónu í Skífunni Kringlunni. Hver veit nema hann taki upp á því að sýna nokkur af sínum alkunnu töfrabrögðum.
Ein sýning í viðbót og 10% afsláttur á hana hér og nú

 

Ein sýning í viðbót
Lokasýning á Laddi 6-tugur í Borgarleikhúsinu fer fram næsta laugardag og hefur verið uppselt á hana margar vikur fram í tímann. Gaman er frá því að segja að 20. janúar næstkomandi verður Laddi 62ja ára, en sýningunni var upphaflega hleypt af stokkunum í byrjun árs 2007 í tilefni af 60 ára afmæli kappans.

 


Vegna ótrúlegrar eftirspurnar og fjölda áskorana hefur nú verið ákveðið að halda eina sýningu í viðbót í tilefni þessara tímamóta og verður hún haldin á 62ja ára afmælisdegi Ladda, þann 20. janúar á nýju ári. Miðasala er hafin á Miði.is og í Borgarleikhúsinu.

Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli