Frétt

Frétt

Laddi 6-tugur komin út á DVD!

Eins og kunnugt er hefur sýningin Laddi 6-tugur gengið fyrir fullu húsi í Borgarleikhúsinu frá frumsýningu í febrúar 2007. Uppselt hefur verið á tæplega 130 sýningar í röð, samfleytt í tvö ár og gestir eru orðnir hátt í 70 þúsund. Um skeið hafa síðustu sýningarnar verið uppseldar langt fram í tímann og lokasýning er 13. desember.
Senu og Bravó er það mikil ánægja að tilkynna hér með um útgáfu sýningarinnar á einstaklega veglegum DVD diski. Hefur disksins verið beðið með þó nokkurrar eftirvæntingar og er það því gleðilegt að geta staðfest að honum er dreift í allar helstu verslandir landsins í dag.
Yfir 90 mínútur af aukaefni

 


Mikið hefur verið lagt í gerð DVD disksins og inniheldur hann meðal annars yfir 90 mínútur af spennandi aukaefni:


- Baksviðs: Tökuliðið kíkti baksviðs, ræddi við aðstandendur sýningarinnar, fylgdist með undirbúningi og horfði á heila sýningu hinum megin við tjaldið - þar sáu þeir Ladda skipta um búninga og gervi með ógnarhraða í tvo tíma.

- Laddi hjá Loga: Logi Bergmann tileinkaði Ladda og ferlinum heilan þátt og hann má finna í heild sinni á diskinum. Logi ræðir við vini og vandamenn Ladda, sýnir gamalt efni frá ferlinum og á gott spjall við heiðursgestinn sjálfan sjálfan.

- Leynigestir: Á 100. sýningunni og 61. árs afmælissýningu Ladda litu landsþekktir gestir við og sumir komu Ladda í opna skjöldu, upp á sviði, í miðri sýningu, fyrir fullu húsi.

- Röfl yfir sýningunni: Laddi, Hjörtur hljómsveitarstjóri, Halli og Steinn Ármann láta móðan mása meðan horft er á sýninguna.

 


Sérstök heimasíða og myndbrot á YouTube
Sérstök heimasíða fyrir DVD diskinn hefur verið opnuð. Þar er að finna allar upplýsingar um diskinn og Ladda, brot úr sýningunni og lítinn leik, þar sem fólk getur unnið sér inn disk með því að skrá sig á póstlista Bravó. Einnig er hægt að sjá myndbrot á Bravó svæðinu á YouTube. http://www.bravo.is/laddi/

Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli