Frétt
Haukur Morthens - Með blik í auga
Glæsileg þreföld ferilsútgáfa kemur út föstudaginn 28. nóvember.
Haukur Morthens er án efa einn dáðasti söngvari Íslands fyrr og síðar og skipar hann merkan sess í huga íslenskra tónlistarunnenda. Á þessari glæsilegu ferilsútgáfu er að finna 66 lög frá öllum ferli Hauks og meðal laga má nefna eftirtalin gullkorn: Með blik í auga, Kaupakonan hans Gísla í Gröf, Bjössi kvennagull, Lóa litla á Brú, Rock-calypso í réttunum, Hæ Mambo, Frostrósir, Þrek og tár, Capri Katarína, Brúnaljósin brúnu, Til eru fræ, Ó, borg mín borg, Í landhelginni (12 mílur), Simbi sjómaður ásamt fjölmörgum öðrum.
"Með blik í auga” er stærsta og yfirgripsmesta safn af lögum Hauks Morthens sem út hefur komið og gefur góða mynd af ævistarfi þessa mikla hæfileikamanns.