Frétt
Minningartónleikar Vilhjálms Vilhjálmssonar (CD/DVD)
10. og 11.október síðastliðin fóru fram minningartónleikar Vilhjálms Vilhjálmssonar í Laugardalshöll og slógu þeir algjörlega í gegn. Alls seldust 12.000 miðar á þá þrennu tónleika sem haldnir voru. Nú er komin út geislaplata og mynddiskur með þessum glæsilegu tónleikum. Hugmyndina af tónleikunum fengu þeir Magnús Kjartansson og Jón Ólafsson og fengu þeir til liðs við sig Senu og Bravó! sem sáu svo um skipulagningu á tónleikunum.
Fram komu alls 18 söngvarar og þar á meðal var Jóhann Vilhjálmsson, sonur Vilhjálms Vilhjálmssonar. Jóhann söng Lítill drengur sem faðir hans hafði einmitt samið um hann við mikla hrifningu áhorfenda. Þess má geta að þetta var í fyrsta skipti sem Jóhann hafði sungið opinberlega. Aðrir söngvarar eru Björgvin Halldórsson Bubbi Morthens, Diddú, Egill Ólafsson, Ellen Kristjánsdóttir, Guðrún Gunnarsdóttir, Helgi Björnsson, Jónsi, KK, Laddi, Lay Low, Páll Rósinkranz, Ragnheiður Gröndal og Stefán Hilmarsson. Sérstakir gestir eru svo Helena Eyjólfsdóttir og Þorvaldur Halldórsson.
Sviðssetningu annaðist Björn G. Björnsson, útsetningar voru í höndum Þóris Baldurssonar og tónlistarstjóri var Magnús Kjartansson.
Þess má geta að tónleikarnir fengu frábæra dóma í fjölmiðlum.
Lagalisti:
1. Bíddu pabbi - Páll Rósinkranz
2. Heimkoma - Páll Rósinkranz
3. Árið 2012…Ramóna…Fátt er svo með öllu illt – Eyjólfur Kristjánsson, Guðrún Gunnars og Stefán Hilmarsson
4. Þú átt mig ein - Jónsi
5. Lítill drengur - Jónsi og Jóhann Vilhjálmsson
6. Halló…Alparós…Í grænum mó - Diddú og Egill Ólafsson
7. Tölum saman – Vilhjálmur Vilhjálmsson
8. Vor í Vaglaskógi…Á sjó…Litla sæta ljúfan góða… Hún er svo sæt…Bara að hann hangi þurr – Stefán Hilmarsson, Helena Eyjólfsdóttir og Þorvaldur Halldórsson
9. Hún hring minn ber - Björgvin Halldórsson
10. Frostrósir - Diddú
11. Einbúinn - KK
12. Ljúfa líf - Ellen Kristjánsdóttir og KK
13. Jamaica - Egill Ólafsson
14. Ég fer í nótt - Helgi Björnsson
15. Svefnljóð - Lay Low
16. Lítill fugl…Dagný - Björgvin Halldórsson og Ragnheiður Gröndal
17. Litli tónlistarmaðurinn - Ragnheiður Gröndal
18. Það er svo skrýtið - Stefán Hilmarsson
19. Söknuður – Vilhjálmur Vilhjálmsson
20. Hrafninn - Bubbi Morthens
21. Einshljóðfærissinfóníuhljómsveitin - Laddi
22. Íslenskt ástarljóð - Þuríður Sigurðardóttir
23. Einu sinni var - KK
24. Ég labbaði í bæinn - Helgi Björnsson
25. Fátt er svo með öllu illt – Allir