Frétt

Frétt

Raggi Bjarna – Lögin sem ekki mega gleymast

Ferill Ragnars Bjarnasonar er einstakur. Hann hefur verið að í nærri 60 ár, nýtur
jafnvel meiri vinsælda nú en nokkru sinni áður og sendir frá sér nýjar plötur
af meiri krafti en nokkru sinni fyrr á ferlinum. Nýja geislaplatan „Lögin sem ekki mega gleymast“ ber
nafn með rentu. Hér hefur Raggi valið 15 lög sem öll eiga sér sess í hans lífi, bæði í
einkalífinu og tónlistarlífinu. Þau eiga það sameiginlegt að hann hefur sungið
þau oft á sínum langa feril en aldrei áður gefið þau út.

Píanósnillingurinn Agnar Már stýrði upptökum við gerð plötunnar
og með Ragga syngja Ellen Kristjánsdóttir, Kristjana Stefánsdóttir, Jónsi og Bjarni Arason.

Lagalisti plötunnar:
1. Manstu gamla daga – Ragnar Bjarnason
2. Fram í heiðanna ró – Ragnar Bjarnason og Kristjana Stefánsdóttir
3. Kenndu mér að kyssa rétt – Ragnar Bjarnason og Ellen Kristjánsdóttir
4. Átján rauðar rósir – Ragnar Bjarnason
5. Þá var allt að gerast – Ragnar Bjarnason
6. Á hörpunnar óma – Ragnar Bjarnason og Bjarni Arason
7. Brúnaljósu brúnu – Ragnar Bjarnason
8. Haddería, haddera - Ragnar Bjarnason
9. Lífið er leikur - Ragnar Bjarnason
10. Í kjallaranum - Ragnar Bjarnason
11. Hvar er bruninn? Ragnar Bjarnason
12. Tondeleyó - Ragnar Bjarnason
13. Ég er kominn heim - Ragnar Bjarnason
14. Æskuminning - Ragnar Bjarnason og Kristjana Stefánsdóttir
15. Viltu með mér vaka í nótt - Ragnar Bjarnason og Jónsi

Allar nánari upplýsingar:
Höskuldur Höskuldsson
hoskuldur@sena.is
696-9408
www.sena.is

Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli