Frétt

Frétt

Stefán Hilmarsson – Ein handa þér

Stefán Hilmarsson rær nú á ný mið og sendir í dag frá sér sína fyrstu
jólaplötu. Það má þó segja að Stefán sé í vissum skilningi kominn
fullan hring, því hann vakti fyrst athygli landsmanna þegar hann söng
um jólahjól fyrir ríflega tveimur áratugum. En síðan þá hefur Stefán
sáralítið sinnt jólalögunum fyrr en núna. Á plötunni kennir ýmissa
grasa og stíla og hún er drekkhlaðin gullfallegum, grípandi og
vönduðum lögum sem í framtíðinni eiga vafalaust mörg eftir að fylla
flokk sígildra jólalaga. Með Stefáni syngja dúetta þau Ellen
Kristjánsdóttir, Helgi Björnsson og Björgvin Halldórsson. Platan er í
senn hátíðleg og hæfilega „poppuð“ og ætti að hæfa jólabörnum á öllum
aldri og af öllum gerðum. Gleðileg jól.

Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli