Frétt

Frétt

Stafakarlarnir á plötu!

Plata byggð á metsölubókinni um Stafakarlana er komin út hjá Senu. Um er að ræða geisladisk með 35 lögum eftir Bergljótu Arnalds þar sem hver bókstafur fær sitt eigið lag. Tónlistardiskurinn er hugsaður til að kenna börnum lestur og auka orðaforða, en auk laganna er sagan lesin í heild sinni. Þá er víða komið við í tónlistarheiminum og fá krakkarnir að kynnast hinni ýmsu tegund tónlistar um leið og þau syngja með og þjálfa sig í lestri.

 

Ekki er vitað til þess að diskur af þessu tagi hafi áður verið gerður hér á landi og fylgir plötunni 36 síðna söngbók sem hefur að geyma alla söngtexta stafakarlanna. Björgvin Franz Gíslason syngur ásamt fleirum, en útsetningar eru í höndum Þorvaldar Bjarna Þorvaldssonar og Vignis Snæs Vigfússonar. Þetta er í fyrsta sinn sem Bergljót Arnalds stígur fram á sjónarsviðið sem lagasmiður en hún hefur áður gert marga þekkta tölvuleiki, þar á meðal fyrsta íslenska tölvuleikinn um Stafakarlana. Þá hefur Bergljót hlotið AUÐAR-verðlaunin fyrir frumkvöðlastarf og nýsköpun.

Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli