Frétt
Gleði Gleði! Frábærir leikir að detta inn!!
Það er heldur betur óvæntur glaðningur að detta inn fyrir helgina. Sena getur staðfest að 4 af bestu leikjum vetrarins detta í búðir fyrir helgina og ættu því tölvunördar landsins og aðrir spilarar að geta skottast út í næstu verslun og nælt sér í eintak.
Þeir leikir sem um ræðir eru Call of Duty: World at War, en það er framhaldið af leik ársins í fyrra. Næstur er sá leikur sem fólk hefur beðið spennt eftir í árabil en við erum jú að tala um LittleBigPlanet, leik sem er að fá um 96% í dóma og er það ferskasta sem komið hefur inn í leikjaflóruna og á klárlega eftir að koma á fjölmörgum yndælum fjölskyldu og vinastundum. Þá er það Football Manager 2009 sem dettur einnig inn, leikur sem allir manager sjúklingar verða að eignast og geta nú loks svalað þörfinni. Og svo að lokum er það Motorstorm Pacific Rift, en hér er á ferðinni einhver magnaðasti drullukappaksturleikur allra tíma.
Það er því stórkostleg helgi framundan og óskum við ykkur góðrar skemmtunar :)