Frétt

Frétt

ÞEGAR TÖLVULEIKIR OG FÓTBOLTI SAMEINAST

ÞEGAR TÖLVULEIKIR OG FÓTBOLTI SAMEINAST: EVERTON 2.0

Í dag hefst nýtt tímabil í sögu knattspyrnustjórnunar þar sem knattspyrnufélagið Everton hefur skrifað undir samning við framleiðendur Football Manager 2009 leikjanna um að verða fyrsta félagið sem notar tölvuleik sem hluta af starfseminni.

 

Everton er fyrsta liðið til að skrifa undir samning við Sports Interactive, framleiðendur Football Manager leikjanna, en sá samningur veitir David Moyes og starfsliði hans til að nota gagnagrunn leiksins (sem inniheldur 370,000 leikmenn og aðila í knattspyrnuheiminum).  Everton mun geta með þessu skoðað yfir 20,000 lið í meira en 50  löndum, en gagnagrunnur leiksins er unninn af aðdáendum liðanna og telur fjöldi þeirra meira en 1000 manns um allan heim.

 

Þessi einstaki gagnagrunnur hefur gert Football Manager leikina að þeim langvinsælustu og mun einnig hjálpa Everton að finna bestu ungu leikmennina um allan heim.  Þegar var Football Manager leikurinn sá fyrsti sem kom auga á Wayne Rooney þegar hann var einungis 15 ára, en einnig hefur leikurinn spáð fyrir um stjörnur á borð við Lionel Messi, Ashley Young og Jose Baxter.

 

Framleiðendur leiksins Paul og Oliver Collyer hafa áður fengið tilboð á borð við þetta, en þetta er í fyrsta skipti sem þeir hafa skrifað undir samning um að færa tölvuleik inní knattspyrnustjórnun í raunveruleikanum.

 

Paul Collyer sagði:
“Gagnagrunnur leiksins er gríðarlega verðmætur, enda gerður af einhverju víðtækasta neti njósnara sem þekkt er, þannig að Everton er að gera góðan samning.  Þar sem ég er Everton aðdáandi er þetta mér sérstakur heiður.  Að standa á vellinum og kvitta undir samninginn er eins nálægt því og ég kemst að uppfylla draum minn um að spila með liðinu.

 

Framkvæmdarstjóri SI Miles Jacobson bætir við:
“Við höfum heyrt af því í nokkurn tíma að lið noti gagnagrunninn til að skoða ákveðna leikmenn, en þetta er opinber viðurkenning um nákvæmni og notagildi gagnagrunnsins.“

 

Football Manager hefur verið uppfærður algjörlega í ár og inniheldur leikurinn stærsta gagnagrunninn hingað til, en leikurinn er kominn út á PC og PSP.

Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli