Frétt
Jól í Rokklandi kemur út 18.nóv
Óli Palli í Rokklandi er mikill jóla-álfur og þykir gaman þegar líða fer að
jólum og hann getur farið að spila lög úr jóla-plötuskápnum sínum, en þar
kennir ýmissa grasa.
Í inngangi efnismikils bæklings sem fylgir með Jólum í Rokklandi segir Óli
Palli m.a.:
,,Á hverju ári þegar jólin nálgast hitti ég fólk sem spyr mig útí hvenær við
á Rás 2 ætlum að byrja að spila jólalögin, en reglan hefur verið sú
undanfarin ár að við byrjum 1. desember.
Margir bíða spenntir eftir að útvarpið hefji upphitun fyrir jólin en svo eru
þeir líka til sem segjast ekki þola þetta jólalagadrasl á útvarpsstöðvunum
sem ætli allt lifandi að drepa um leið og nóvember sé hálfnaður.
Það má vel vera að það sé þannig einhversstaðar, en alls ekki hjá okkur á Rás 2.
Sjálfur á ég í kringum 150 jólaplötur og hef lagt talsvert á mig til að hafa
uppi á sumum þeirra en ég hef sérstakan áhuga á jólamúsík sem ég á erfitt
með að útskýra. Ég á allskyns jólaplötur en skemmtilegast finnst mér þegar
rokkið og jólin renna saman á einhvern hátt. Ólíklegustu listamenn hafa
gefið út jólaplötu eða a.m.k. eitt og eitt jólalag.
Ég hef undanfarin ár helgað jólalögum eitt Rokkland í kringum jólin, oft á
annan í jólum, og hef fengið sterk og mikil viðbrögð við því. Þar hef ég
reynt ár hvert að fleyta rjómann ofan af jóla-rokkinu í bland við eitthvað
skrýtið og skemmtilegt og þessi plata er tilraun til að halda áfram með það
,,konsept".
Hér býð ég upp á þekkt og minna þekkt jólalög með flytjendum sem
sumir eru heimsþekktir en aðrir mun minna þekktir og vona að þú, hlustandi
góður, komist í skemmtilega og öðruvísi jólastemmningu þegar þú lætur Jól í
Rokklandi ljúft um hlustir renna...hó hó hó !!!
Heims um ból, rokk og ról, gleðileg jól.
Kveðja - (J)Óli P.".