Frétt
Sálin hans Jón míns - Hér er draumurinn
Þann 18. nóvember sendir hljómsveitin Sálin hans Jóns míns frá sér veglegan útgáfupakka. Útgáfan heitir „Hér er draumurinn“ og er einhver veiga- íburðarmesta hljóð- og mynddiskaútgáfa sem gerð hefur verið hérlendis. Í raun er um þrjár útgáfur að ræða; Í fyrsta lagi þriggja hljóðdiska útgáfu sem inniheldur 45 þekktustu lög sveitarinnar. Í öðru lagi er um að ræða tveggja mynddiska útgáfu (DVD) þar sem annar diskurinn geymir 90 mínútna heimildamynd um Sálina, en hinn diskurinn öll myndbönd sveitarinnar. Í þriðja lagi er um að ræða sjö diska viðhafnarútgáfu í takmörkuðu upplagi; fjóra hljóðdiska og þrjá mynddiska (DVD).
Viðhafnarútgáfan verður gefin út í takmörkuðu upplagi og skiptist þannig: Fyrsti mynddiskurinn af þremur geymir öll myndbönd Sálarinnar, annar mynddiskurinn inniheldur valdar tónleikaupptökur frá ýmsum tímum og sá þriðji inniheldur lengri útgáfu heimildamyndarinnar (150 mínútur).
Fyrsti hljóðdiskurinn af fjórum geymir valdar tónleikaupptökur (aðrar en þær sem koma fyrir á mynddisknum). Hinir hljóðdiskarnir þrír geyma samtals 45 þekktustu lögin. Á meðal þeirra verða að sjálfsgöfðu nýjustu lögin þrjú sem út komu í sumar og haust, lögin „Gott að vera til“, „Það amar ekkert að (ég get svo svarið það)“
og „Það er satt“. Viðhafnarútgáfunni og þreföldu hljóðdiskaútgáfunni fylgir síðan 92 blaðsíðna bók, fagurlega skreytt myndum og fróðleik um sögu sveitarinnar frá upphafi til
dagsins í dag.
Útgáfugleði verður á Nasa laugardaginn 29. nóvember þar sem Sálin verður með ball í tilefni útgáfunnar.